Þátttökuréttur á Íslandsmóti fullorðinn og ungmenna

14. maí 2021
Fréttir

Nýjar reglur um Íslandsmót kveða á um að þátttökurétt eiga hæstu pör á stöðulista og í hringvallagreinum gilda einungis einkunnir úr T1, T2, V1 og F1. Á þetta við um bæði fullorðinsflokk og ungmennaflokk. Árangur frá síðasta og núverandi keppnistímabili gildir, þ.e. árin 2020 og 2021.

Stöðulistann má finna á vef LH undir flipanum mótahald.

Fjöldi þátttakenda í fullorðinsflokki er 30 í hringvallagreinum, gæðingaskeiði og 100 m. skeiði og 20 í 150 og 250 m. skeiði.

Fjöldi þátttakenda í ungmennaflokki er 20 í hringvallagreinum, 15 í gæðingaskeiði og 100 m. skeiði og 6 í 150 og 250 m. skeiði.

Pör sem keppa til verðlauna um samanlagðan sigurvegara þurfa að vera á stöðulista í a.m.k. einni grein en eiga jafnframt skráðan árangur í öðrum greinum sem telja til samanlagðra verðlauna og geta einnig skráð í þá grein.

Árangur í yngri flokkum á árinu á undan gildir í eldri flokki hafi knapi færst á milli aldursflokks á árinu. Þannig geta þeir sem fæddir eru 1999 átt árangur í ungmennaflokki frá árinu 2020 sem gildir í fullorðinsflokki árið 2021 og þeir sem fæddir eru 2003 geta átt árangur í unglingaflokki frá árinu 2020 sem gildir í ungmennaflokki á þessu ári.

Flokkar fullorðinna og ungmenna ríða forkeppni saman en úrslit eru í hvorum flokki fyrir sig.

Reglugerð um Íslandsmót má finna hér.

Stöðulista fyrir Íslandsmót má finna hér.

Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 2021 verður haldið á Hólum í Hjaltadal dagana 30. júní til 4. júlí. Hestamannfélögin á Norðvestur- og Norðurlandi munu halda mótið í sameiningu.