Leiðin að gullinu

08. desember 2022
Fréttir
Jóhanna Margrét og Bárður, ríkjandi Íslandsmeistarar í fjórgangi.

Leiðin að gullinu

Menntadagur íslenska landsliðsins

Haldinn í TM reiðhöllinni í Víðidal þann 10 desember næstkomandi klukkan 10:30-15:30.

Vegleg dagskrá er í boði yfir daginn þar sem okkar allra færustu knapar og þjálfarar halda sýnikennslur.

Þjálfun og uppbygging fjórgangshestsins.

Tvær fagkonur í greininnni þær Ragnhildur Haraldsdóttir og Jóhanna Margrét Snorradóttir fjalla um þjálfun fjórgangshestins, uppbygging og undirbúningur fyrir sýningu í fjórgangi á hæsta afreksstigi íþróttarinnar.

Fjalla um þjálfun gangtegundanna og helstu atriði við þjálfun þeirra.

Jóhanna Margrét er ríkjandi Íslandsmeistari í fjórgangi á Bárði frá Melabergi og silfurhafi í tölti T1.

Ragnhildur er fyrrum Íslandsmeistari í fjórgangi og hefur skapað sér sess sem einn okkar alfærasti keppnisknapi í fjórgangi undanfarin ár.

Þetta er frábært tækifæri fyrir fróðleiksþyrsta hestamenn að skyggnast inn í aðferðafræði landsliðsknapanna okkar, fræðast um þjálfun þeirra með hesta sína, skyggnast inn í undirbúning þeirra í upphafi vetrar og fá innblástur inn í nýjan hestavetur.

Nú er HM ár framundan, og íslenska landsliðið komið á fullt í sinn undirbúning og ætlar svo sannarlega ekki að láta sitt eftir liggja þegar á hólminn er komið.

Takið daginn frá, notið tækifærið og sækið ykkur fróðleik hjá knöpum á hæsta stigi reiðmennskunnar og styrkið landsliðið okkar til dáða inn í mikilvægt tímabil.

Vegleg dagskrá, ýmis varningur til sölu og flott veitingasala á staðnum yfir daginn.

Miðasala fer fram á www.lhhestar.is og í verslun Líflands á Lynghálsi