Keppni í hestaíþróttum heimil að nýju

13. janúar 2021
Fréttir

Nýjar sóttvarnarreglur taka gildi 13. janúar með nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

Sóttvarnaryfirvöld hafa samþykkt sóttvarnarreglur fyrir hestaíþróttir og eru þær birtar á heimasíðu LH.

Í nýjum sóttvarnarreglum eru æfingar og keppni heimilar með ákveðnum takmörkunum og eru mótshaldarar beðnir um að kynna sér reglurnar vandlega. 

  • Reglurnar gilda um óákveðin tíma, eða þar til næsta reglugerð heilbrigðisráðherra verður gefin út.
  • Æfingar og keppni eru heimilaðar.
  • Mikilvægt er að skráning iðkenda á æfingum sé nákvæm til að auðvelda smitrakningu.
  • Iðkendum er óheimilt að nota sameiginlega félagsaðstöðu.
  • Ekki er mælt með notkun andlitsgríma við íþróttaiðkun
  • Reglur varðandi keppni:
      • Áhorfendur eru bannaðir.
      • Mótshaldarar ættu ekki að útvega veitingar fyrir starfsfólk eða keppendur. Allar veitingar sem einstaklingar taka með sér skulu vera í lokuðum umbúðum.
      • Skipta þarf mótssvæði upp í ytra rými (starfsmannasvæði) og innra rými (keppnissvæði).
      • Hámarksfjöldi í rými á keppnissvæði er 50 manns.
      • Hámarksfjöldi í rými á starfsmannasvæði er 20 manns.
      • Mótshaldarar bera ábyrgð á að tryggja 2ja metra nálægðartakmörk milli allra ótengdra aðila.