FEIF Youth Cup 2012

09. mars 2012
Fréttir
Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á FEIF Youth Cup sem haldið verður dagana 7.-15.júlí n.k. Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á FEIF Youth Cup sem haldið verður dagana 7.-15.júlí n.k.

Mótið er haldið í Verden í Þýskalandi. Heimasíðan www.feifyouthcup2012.de er upplýsingasíða mótsins.

Skilyrði fyrir þátttöku eru:
•    Reynsla í hestamennsku
•    Enskukunnátta
•    Keppnisreynsla í íþróttakeppni
•    Sjálfstæði
•    Geta unnið í hóp
•    Reglusemi

Með umsókn þurfa að fylgja upplýsingar um reynslu í hestamennsku, mynd, keppnisárangur og upplýsingar um önnur skilyrði þátttöku.

Nánari upplýsingar fást á heimasíðu LH, www.lhhestar.is undir ´æskulýðsmál´ og hjá æskulýðsfulltrúum LH og hestamannafélaganna.

Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu LH, Engjavegi 6, 104 Reykjavík fyrir 1.apríl 2012. Senda má umsóknir í tölvupósti á hilda@landsmot.is eða lh@isi.is

Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga