Enn fleiri leiðir í Kortasjána

14. nóvember 2011
Fréttir
Undanfarna mánuði og misseri hefur Landssamband hestamannafélaga unnið að skráningu reiðvega og reiðleiða í kortasjá. Undanfarna mánuði og misseri hefur Landssamband hestamannafélaga unnið að skráningu reiðvega og reiðleiða í kortasjá.

Reiðleiðirnar eru unnar ofan á myndagrunn frá Loftmyndum ehf. Samhliða skráningunni í kortasjána þá eru reiðleiðirnar skráðar á Exelform, reiðleiðaskrár, og reiðleiðunum gefin númer ( aðal- og kaflanúmer ), það er gert í samráði við Vegagerðina. Einungis eru skráðar þær reiðleiðir sem eru á aðal- og deiliskipulögum viðkomandi sveitarfélaga. Nýlega bættust við Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýsla.

Alls eru komar í kortasjána 745 reiðleiðir sem spanna yfir 5.586 km úr Borgarfirði og austur að Lómagnúp. Unnt er að taka gps ferla flestra reiðleiðanna af kortasjánni beint í gps tæki, þá eru flestir skálar einnig í kortasjánni. 

Auðvelt á að vera fyrir hestamenn að skipuleggja hestaferðir af kortasjánni og hlaða leiðunum  niður í gps tækin sín. Það á einnig við um gönguferðir þar sem sumar af þessum leiðum eru samnýtanlegar hesta- og göngufólki. 
Næstu skref í skráningu reiðleiðanna verða norðan heiða, þ.e. Húnavatns- Skagafjarðar, Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslur.

Ekkert er því til fyrirstöðu að þeir sem þjónusta hestamennskuna eða  ferðaþjónustu almennt geti gert sig sýnilega í kortasjánni með t.d. krækjum þaðan og á sínar heimasíður.

Hægt er að komast á kortasjána af heimasíðu LH www.lhhestar.is þar til hægri Kortasjá, eða beint á http://www.loftmyndir.is/k/kortasja.asp?client=hestar

Landssamband hestamannafélaga