Fréttir: Október 2021

Tilkynning frá stjórn Landssambands hestamannafélaga

31.10.2021
Fréttir
Stjórn Landssambands hestamannafélaga (LH) og landsliðsnefnd hafa tekið ákvörðun um að víkja einum landsliðsmanni úr landsliðshópi Íslands í hestaíþróttum. Ákvörðunin er tekin í ljósi nýtilkominna upplýsinga um dóm sem landsliðsmaðurinn hlaut fyrir kynferðisbrot, en stjórn sambandsins og landsliðsnefnd hafði ekki verið kunnugt um dóminn.

Knapi ársins er Árni Björn Pálsson

30.10.2021
Fréttir
Viðurkenningar fyrir knapa ársins og keppnishestabú ársins 2021 voru veittar á Hótel Natura dag. Verðlaunin eru gefin af Ásbirni Ólafssyni. Einnig veitti Meistaradeildin í hestaíþróttum efnilegasta knapa ársins viðurkenningu í formi gjafabréfs fyrir reiðtímum hjá knapa í Meistaradeildinni.

Tilnefningar til knapaverðalauna og keppnishestabús ársins 2021

22.10.2021
Fréttir
Tilnefningar valnefndar LH til knapaverðlauna og fyrir keppnishestabú ársins 2021 liggja fyrir.

Verðlaunahátíð Landssambands hestamannafélaga 2021

15.10.2021
Fréttir
Ákveðið hefur verið að halda verðlaunahátíð Landssambands hestamannafélaga í stað Uppskeruhátíðar í ár. Hátíðin verður einungis fyrir boðsgesti. Bein útsending frá verðlaunafhendingunni verður á Alendis TV þann 30. október kl 17.