Fréttir: Júní 2011

Glæsileg ræktunarbú á LM

20.06.2011
Fréttir
Sýningar ræktunarbúa skipa ávallt sérstakan sess í dagskrá landsmóta og er brekkan jafnan þétt setin á meðan. Gerð hefur verið sú breyting á dagskrá landsmóts, að ræktunarbússýningarnar hafa verið færðar af fimmtudagskvöldinu yfir á föstudagskvöldið 1. júlí kl. 20:00.

Endanlegir stöðulistar fyrir Landsmót 2011

19.06.2011
Fréttir
Hér má sjá endanlega stöðulista fyrir Landsmót fyrir tölt og skeiðgreinar. Ef einhverjar athugasemdir eru við listana hafið þá endilega samband við skrifstofu LH í s:514-4030 eða lh@isi.is

Lögleg stærð skeifna

16.06.2011
Fréttir
Af gefnu tilefni vill Landssamband hestamannafélaga beina þeim tilmælum til þeirra sem eru nú að huga að járningum hrossa fyrir Landsmót og Íslandsmót að gæta þess að skeifur standist mál samkvæmt lögum og reglum LH.

Niðurstöður úr skeiðgreinum á Sörlastöðum

16.06.2011
Fréttir
Keppni í 100m skeiði fór fram í gærkvöldi á Sörlastöðum. Einnig voru farnir fyrri sprettir í 150m skeið og 250m skeið. Niðurstöður má sjá hér fyrir neðan.

Viðar og Tumi efstir í tölti

16.06.2011
Fréttir
Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi standa efstir í tölt með einkunnina 8,13 annar er John Sigurjónsson á Tóni frá Melkoti með einkunnina og þriðja er Olil Amble á Krafti frá Ketilsstöðum með einkunnina 7,63.

Sigurður Vignir og Birtingur efstir í gæðingaskeiði

16.06.2011
Fréttir
Þeir félagar Sigurður V Matthíasson og Birtingur frá Selá eru efstir í gæðingaskeiði í fyrri umferð úrtökunnar fyrir heimsmeistaramót. Þeir hlutu einkunnina 8,04.

Eyjólfur og Teitur efstir

16.06.2011
Fréttir
Að lokinni fyrri umferð í slaktaumatölti er Eyjólfur Þorsteinsson á Ósk frá Þingnesi efstur með einkunnina 8,00 og í ungmennaflokki er Teitur Árnason á Gammi frá Skíðbakka III með einkunnina 7,00.

Hulda og Kjuði efst í fjórgang

16.06.2011
Fréttir
Keppni í fjórgangi í fyrri umferð úrtöku fór fram í gær. Efst er Hulda Gústafsdóttir á Kjuða frá Kirkjuferjuhjáleigu með einkunnina 7,50 á hæla hennar er Olil Amble með Kraflar frá Ketilsstöðum með einkunnina 7,47.

Hinrik og Glymur á toppnum

15.06.2011
Fréttir
Þá er fyrri umferð í fimmgangi lokið á úrtökumóti fyrir Heimsmeistaramótið í Austurríki. Það eru þeir Hinrik Bragason og Glymur frá Flekkudal sem standa efstir með einkunnina 7,27.