Vinnur þú Top Reiter hnakk?

25. mars 2016
Fréttir

Dagskráin á "Þeim allra sterkustu" laugardagskvöldið 26. mars verður glæsileg. Margir af landsins bestu tölturum keppa sín á milli, veglegt happdrætti er í gangi og dregið verður í lok kvölds. Miðinn kostar aðeins 1.000 kr. 

Í happdrættinu verður dregið um glæsilega vinninga:

  • Folatollur undir Landsmótssigurvegarann Óm frá Kvistum
  • Hnakkurinn START frá Top Reiter
  • Folatollur undir vonarstjörnuna Sigur frá Stóra-Vatnsskarði
  • Hjónapassi á LM2016
  • Steði frá PON ehf. 
  • iittala vasi frá Ásbirni Ólafssyni
  • Lopapeysa frá Frú Pálínu

Aðgöngumiðar eru seldir fram að lokun í verslunum Top Reiter, Líflands og Baldvins og Þorvaldar. Einnig verða miðar seldir við innganginn. Miðaverð er kr. 3.500. Tilboð í miðasölu: einn aðgöngumiði + tveir happdrættismiðar = 5.000 kr. 

Minnum einnig á stóðhestaveltuna: Folatollur undir glæsistóðhest á aðeins 25.000 krónur! 101 hestur í boði! Allir vinna!

Landsliðsnefnd LH