Vesturlandssýning í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi

11. mars 2011
Fréttir
Reiðhöllin Faxaborg, Borgarnesi
Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands hafa ákveðið að efna til Vesturlandssýningar í reiðhöllinni Faxaborg, Borgarnesi, föstudaginn 15. apríl 2011 kl. 20:00.  Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands hafa ákveðið að efna til Vesturlandssýningar í reiðhöllinni Faxaborg, Borgarnesi, föstudaginn 15. apríl 2011 kl. 20:00.  Hér áður fyrr voru sýningar haldnar af Vestlendingum í Víðidalnum og í Kópavogi og það má segja að verið sé að endurvekja gamla siði.
 
Á sýningunni munu koma fram vestlenskir gæðingar og dæmi um sýningaratriði eru sýningar hjá börnum og unglingum, ásamt fimmgangs og fjórgangshestum, skeiði, kynbótahrossum og  ræktunarbúum ásamt mörgum fleiri atriðum með góðum gestum. Dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.
 
Þeir sem hafa ábendingar um atriði eða hross, sem eiga erindi á sýninguna geta komið þeim á framfæri við þessa aðila:
 
Ámundi Sigurðsson, sími: 892-5678, netfang:  amundi@isl.is
Baldur Björnsson, sími: 895-4936, netfang:  baldur@vesturland.is
Stefán Ármannsson (v/ kynbótahrossa), sími: 897-5194, netfang:  stefan@hroar.is
 
Undirbúningsnefndin.