Vesturlandssýning í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi

19. janúar 2011
Fréttir
Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands hafa ákveðið að efna til Vesturlandssýningar í reiðhöllinni Faxaborg, Borgarnesi, laugardaginn 26. mars 2011 kl. 20:00. Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands hafa ákveðið að efna til Vesturlandssýningar í reiðhöllinni Faxaborg, Borgarnesi, laugardaginn 26. mars 2011 kl. 20:00.

Má segja að um sé að ræða tilraun til að endurvekja sýningar sem voru haldnar fyrir allt of löngu síðan af Vestlendingum í Víðidalnum og í Kópavogi.

Á sýningunni munu aðallega koma fram vestlenskir gæðingar og m.a. sýnt tölt, fimmgangur, fjórgangur, kynbótahross og atriði frá hestamannafélögunum á svæðinu.  Börn og unglingar munu einnig koma fram.

Þeir sem hafa ábendingar um atriði eða hross, sem eiga erindi á sýninguna geta komið þeim á framfæri við þessa aðila:

Ámundi Sigurðsson, sími: 892-5678, netfang:  amundi@isl.is

Baldur Björnsson, sími: 895-4936, netfang:  baldur@vesturland.is

Stefán Ármannsson (v/ kynbótahross), sími: 897-5194, netfang:  stefan@hroar.is


Undirbúningsnefndin