Vesturlandssýning í Faxaborg

18. mars 2013
Fréttir
Nú styttist í Vesturlandssýningu og er undirbúningur í fullum gangi. Dagskráin er þétt og mikil og góð þátttaka á meðal hestamanna á Vesturlandi.


Borgarnesi
laugardaginn 23. mars 2013
Aðgangseyrir: 1.500 fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir 6-12 ára og frítt fyrir 5 ára og yngri.
www.faxaborg.is

Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands
Vesturlands efna til sýningar.

Nú styttist í Vesturlandssýningu og er undirbúningur í fullum gangi. Dagskráin er þétt og mikil og góð þátttaka á meðal hestamanna á Vesturlandi.

Endanleg dagskrá verður auglýst á allra næstu dögum en hún spannar á milli 20-30 atriði. Þar má helst nefna börn, unglinga, A-flokk gæðinga, B-flokk gæðinga, skeið, kynbótahross, ræktunarbú og afkvæmasýningar.

Einnig verða á sýningunni eftirtalin atriði:
Menntaskóli Borgarfjarðar, Félag tamningamanna, vestlenskar heimasætur, söngatriði og einhverjir af þeim glæsilegu stóðhestum sem Hrossaræktarsamband Vesturlands býður upp á í ár láta sjá sig svo
eitthvað sé nefnt.

Undirbúningsnefndin