Úrval Útsýn kynnir spennandi ferð á HM

15. maí 2015
Fréttir

Úrval Útsýn eru búin að setja saman spennandi ferð á HM í Herning, sem þau kalla „Frábær ferð eftir fyrri slátt“, þar sem farið verður í gegnum Hamborg, áður en leiðin liggur til Herning, til að fá sem mest út úr ferðinni.

Flogið til Hamborgar 2.ágúst og byrjað á því að fara í heimsókn á íslenskan hestabúgarð í útjaðri Hamborgar, Vindhóla (www.vindholar.de) sem Íslendingurinn Einar Hermansson rekur ásamt konu sinni sem er þýsk. Þaðan er keyrt í rútu upp til Schleswig þar sem borðaður verður kvöldmatur og gist á notalegu sveitahóteli (kvöldmatur og morgunverður innifalið). Þar mun Sigurður Sæmundsson fararstjóri segja sögur og spá í spilin. Daginn eftir er keyrt áfram upp til Herning með viðkomu á Víkingasafninu ‚Viking Museum Haithabu‘. Komið til Herning að kvöldi 3.ágúst og gist á Scandic Regina hótelinu 3.-10.ágúst.

Hér má sjá allt um ferðina: http://www.urvalutsyn.is/hm-islenska-hestsins/