Úrtaka fyrir Uppsveitadeildina

11. ágúst 2011
Fréttir
Reiðhöllin á Flúðum auglýsir úrtöku fyrir Uppsveitadeildina. Reiðhöllin á Flúðum auglýsir úrtöku fyrir Uppsveitadeildina.
Þátttakendur skulu vera félagar í hestamannafélögunum Loga, Trausta eða Smára.

Úrtakan verður haldin í reiðhöllinni þann 27. ágúst kl 14, keppt verður í fjórgangi og fimmgangi eftir FIPO reglum. Keppt verður um 11 laus sæti í deildinni þ.e 6 sæti Smárafélaga, 2 sæti Logafélaga og 3 sæti Traustafélaga.

Skráningar sendist á ksb@internet.is  Við skráningu komi fram IS nr  hests og kt knapa.  Skráningum skal lokið fyrir kl 20 þriðjudaginn 23. ágúst.

Skráningargjald er 3000 kr. og greiðist á staðnum.

Hægt verður að nálgast reglurnar á heimasíðum hestamannafélagana.

www.smari.is  
http://hestamannafelagidlogi.bloggar.is  
http://trausti.123.is