Úrslit frá Kristjánsmótinu

09. mars 2011
Fréttir
Kristjánsmótið var haldið síðastliðinn laugardag í Mánahöllinni og var gaman að sjá hversu góð þátttaka var í mótinu. Kristjánsmótið var haldið síðastliðinn laugardag í Mánahöllinni og var gaman að sjá hversu góð þátttaka var í mótinu. Einnig var góð mæting á pallana og skemmti fólk sér hið besta við að horfa á tilþrif smalanna. Eftir verðlaunaafhendingu galdraði fram kvennadeildin frábæra upp veislu allsvakalegri, nutu menn þar góðra veitinga. Hlynur og Helga gáfu öll verðlaun mótsins og þökkum við þeim kærlega fyrir það. Mótanefndin vill þakka Mánamönnum og öðrum gestum fyrir frábært kvöld.

Úrslit:
1) Jóhanna Margrét Snorradóttir Gréta frá Syðra-Skóganesi
2) Snorri Ólason Dynur frá Ásbrú
3) Haraldur Valbergsson Orka frá Síðu
4) Sveinbjörn Bragason Líf frá Flagbjarnarholti
5) Haukur Aðalsteinsson Galsi frá Grund
6) Högni Sturluson Glóa frá Höfnum
7) Óli Garðar Axelsson Flóki frá Feti
8) Íris Eysteinsdóttir Svartur frá Sauðárkróki
9) Ólöf Rún Guðmundsdóttir Perla frá Hólmi
10) Hlynur Kristjánsson Loftur frá Kirkjubæ