Uppskeruhátíð hestamanna

29. október 2015
Fréttir
Uppskeruhátíð hestamanna

Það styttist, miðasalan í fullum gangi!

Nú er rúm vika í Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin verður í Gullhömrum 7. nóvember næstkomandi. Gullhamrar er einn glæsilegasti veitinga- og veislustaður á landinu í dag og ætti því enginn að láta sig vanta á þessa frábæru hátíð okkar. Dagskráin verður með sama móti og venjulega. Verðlaunaafhendingin verður á sínum stað, dýrindis þriggja rétta máltíð og að sjálfsögðu dönsum við saman langt fram eftir nóttu eins og okkur hestamönnum er einum lagið.

Matseðill:          

Humarsúpa með ristuðum humarhölum og nýbökuðu brauði

Lambahryggvöðvi með kartöfluköku, steiktum skógarsveppum og lambasoðsósu

Vanilluís Gelato með súkkulaði og Oreokurli

 

Miðasala og borðapantanir eru í fullum gangi. Til að einfalda Gullhömrum vinnuna þarf að vera alveg á hreinu hver á að sitja við hvaða borð ef sérstakar óskir eru um borð. Gott er ef einn er skráður fyrir borðinu og nafn þess aðila tekið fram í skýringum þegar millifært er. Borðapöntun er staðfest með greiðslukvittun.

Miðasala: Banki 301-26-14129, kt. 660304-2580. Miðar afhentir 5. - 6. nóvember milli kl. 9:00-15:00 eða við innganginn 7. nóvember.

Miðasölu lýkur kl. 18:00 miðvikudaginn 4. nóvember.

Borðapantanir: Eftir greiðslu, senda borðapöntun og nafnalista borðgesta á gullhamrar@gullhamrar.is

Hlökkum til að sjá ykkur!

Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda.