Uppskeruhátíð Æskulýðsnefndar

05. desember 2014
Þóra og Egill

Uppskeruhátíð Æskulýðsnefndar var haldin sl. laugardag og var vel sótt.

Hátíðin byrjaði á því að Birna Tryggvadóttir reiðkennari hélt afar fróðlega sýnikennslu og eftir það voru veittar viðurkenningar í barna og unglingaflokki.

Í máli Vignis Sigurðssonar kom fram að mjög erfitt oft er að tilnefna bikarhafa, því hópur Léttiskrakka er svo magnaður.

En þau sem urðu fyrir valinu að þessu sinni voru.

Í barnaflokki Egill Þórsson

í unglingaflokki Þóra Höskuldsdóttir.

Er þeim óskað hjartanlega til hamingju með titlana.

Síðan voru pizzur og gos í boði nefndarinnar.

Skemmtilegur dagur og til sóma.

 

Með Léttiskveðju

Hólmgeir

 

ÞóraEgill