Uppselt - sætum bætt við

14. ágúst 2012
Fréttir
Frábærar viðtökur hafa verið við ferð Úrvals Útsýnar og LH á Heimsmeistaramót íslenska hestsins, sem haldið verður í Berlín í ágúst 2013 og er uppselt í þau sæti sem boðið var upp á í fyrstu.

Frábærar viðtökur hafa verið við ferð Úrvals Útsýnar  og LH á Heimsmeistaramót íslenska hestsins, sem haldið verður í Berlín í ágúst 2013 og er uppselt í þau sæti sem boðið var upp á í fyrstu. Því hefur verið ákveðið að bæta við fleiri sætum til að mæta eftirspurn.

Þetta eru sérlega góð tíðindi fyrir okkur hestamenn og bendir til að mikill áhugi sé fyrir mótinu. Þeir sem eru ákveðnir í að fara bíða ekki með að bóka sig, enda hvergi skemmtilegra að vera en á Heimsmeistaramóti í góðra vina hópi. Því stefnir allt í einstaklega tilþrifamikið og skemmtilegt mót.

Hægt er að bóka sig í ferðina með því að hafa samband við skrifstofu Úrvals Útsýnar og greiða síðan inn á ferðina til að festa hana. En með því að bóka í þessa ferð styrkir þú landsliðið beint.

Landsliðsnefnd LH