Unga fólkið hvatt til að þátttöku í verðlaunaafhendingu á Landsmóti í sumar

24. mars 2010
Fréttir
Landsmót óskar eftir samvinnu við unga fólkið við verðlaunaafhendingu 2010
Landsmót hestamanna sem haldið verður í Skagafirði dagana 27.  júní - 4. júlí hefur óskað eftir samstarfi við æskulýðsnefndir hestamannafélaga landsins í þeim tilgangi að virkja ungmenni og unglinga við verðlaunaafhendingu á mótinu. Landsmót hestamanna sem haldið verður í Skagafirði dagana 27.  júní - 4. júlí hefur óskað eftir samstarfi við æskulýðsnefndir hestamannafélaga landsins í þeim tilgangi að virkja ungmenni og unglinga við verðlaunaafhendingu á mótinu.

Mælst er til að unga fólkið skarti félagsbúningi sínum við afhendinguna og geta áhugasamir haft samband við æskulýðsnefndir hestamannafélaganna en einnig er hægt að senda póst á  landsmot@landsmot.is

Í póstinum þarf að koma fram nafn og aldur ásamt upplýsingum um hvaða hestamannafélagi viðkomandi tilheyrir.