Umsóknir um þjálfarastyrki

18. september 2013
Fréttir
Stjórn Verkefnasjóðs ÍSÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki ÍSÍ. Þjálfarastyrkir ÍSÍ eru veittir íþróttaþjálfurum sem sækja sér menntun erlendis í formi námskeiða eða ráðstefna og bæta þekkingu sína í þjálfun, sem mun nýtast íþróttahreyfingunni á Íslandi.

Umsóknarfrestur er til 2. október og er upphæð hvers styrkjar 100.000 krónur. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á vefslóðinni http://isi.is/library/Skrar/Efnisveita/Eydublod/umsokn_um_thjalfarastyrk.pdf

Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs hjá ÍSÍ í síma 514 4015.