Umsóknir um mótadaga og dómara

17. nóvember 2009
Fréttir
Landssamband hestamannafélaga vill vekja athygli á því að umsóknarfrestur til þess að sækja um mótadaga er til 10.des.nk. Umsóknarfrestur til þess að sækja um íþrótta- og gæðingadómara er til 15.des.nk. Landssamband hestamannafélaga vill vekja athygli á því að umsóknarfrestur til þess að sækja um mótadaga er til 10.des.nk. Umsóknarfrestur til þess að sækja um íþrótta- og gæðingadómara er til 15.des.nk. Umsóknareyðublöðin er hægt að nálgast á heimasíðu LH, www.lhhestar.i,s undir „keppnismál/met og árangur/skrár og eyðublöð“.

Dómarafélögin stefna að því að halda upprifjunarnámskeið snemma á næsta ári svo hægt sé að úthluta dómurum fyrr en undanfarin ár.

LH hvetur félögin til að sækja um mótadaga og dómara tímanlega.