U21-landsliðshópur LH 2022 kynntur

03. desember 2021
Fréttir
Efri röð f.v. Kristinn Skúlason form. landsliðsnefndar, Sigurður Baldur, Benedikt, Arnar Máni, Egill Már, Kristófer Darri, Hákon Dan, Matthías, Guðmar Hólm, Jón Ársæll, Hekla K. Kristinsdóttir U21-landsliðsþjálfari. Fremri röð f.v. Védís Huld, Glódís Rún, Hulda María, Katla Sif, Signý Sól, Þórgunnur, Gyða Sveinbjörg.

Landsliðsþjálfari U21-landsliðs LH, Hekla Katharína Kristinsdóttir, hefur valið 16 knapa í U21- landsliðshóp LH fyrir árið 2022. Sex knapar koma nýir inn í hópinn; Arnar Máni Sigurjónsson, Egill Már Þórsson, Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, Jón Ársæll Bergmann, Matthías Sigurðsson og Þórgunnur Þórarinsdóttir.

Við val á knöpum í landsliðshópa LH er tekið tillit til árangurs í keppni, reiðmennsku, hestakosts og íþróttamannslegrar framkomu. Landsliðsþjálfari vegur og metur knapana eftir árangri þeirra en ekki síður hestakosti og stillir hópnum þannig upp að styrkleikar séu í öllum greinum.

Stærsta verkefni ársins 2022 er Norðurlandamót sem verður haldið í Álandseyjum í byrjun ágúst. Knapar í landsliðshópum LH eru í forvali þegar kemur að landliðsverkefnum en einnig er landsliðsþjálfara heimilt að velja knapa utan hópsins þegar þurfa þykir.  Landsliðsþjálfarinn mun fylgjast grannt með árangri þeirra sem ekki komust í hópinn að þessu sinni, en áttu engu að síður mjög góðan keppnisárangur á liðnu keppnistímabili. 

Eftirtaldir knapar taka sæti í U-21 árs landsliðshópnum 2022:

Arnar Máni Sigurjónsson, Fáki
Benedikt Ólafsson, Herði
Egill Már Þórsson, Létti
Glódís Rún Sigurðardóttir, Sleipni
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, Þyt
Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir, Sleipni
Hákon Dan Ólafsson, Fáki
Hulda María Sveinbjörnsdóttir, Spretti
Jón Ársæll Bergmann, Geysi
Katla Sif Snorradóttir, Sörla
Kristófer Darri Sigurðsson, Spretti
Matthías Sigurðsson, Fáki
Signý Sól Snorradóttir, Mána
Sigurður Baldur Ríkharðson, Spretti
Védís Huld Sigurðardóttir, Sleipni
Þórgunnur Þórarinsdóttir, Skagfirðingi

Til hamingju knapar!