U21-landsliðshópur LH

28. febrúar 2019
Fréttir
Ljósmyndari: Gunnar Freyr Gunnarsson

Landssamband hestamannafélaga (LH) kynnti U21 landsliðshóp LH í Líflandi þann, 28. febrúar. Þetta er annað skrefið sem LH tekur í breyttum áherslum í afreksmálum en nýlega var kynntur landsliðshópur LH í flokki fullorðinna.

Síðustu þrjú ár hefur LH haldið úti afrekshópi ungmenna, 16-21 árs, sem hittist reglulega undir leiðsögn liðstjóra og valins reiðkennara. Töluverðar breytingar veðra gerðar á því fyrirkomulagi í takt við nýjar áherslur LH í afreksmálum. Áherslurnar verða svipaðar og í nýskipuðum landsliðshóp LH og mun U21 hópurinn hafa aðgang að sama fagteymi og fræðslu. Breytingarnar frá því að vera afrekshópur ungmenna yfir í að vera U21 landsliðshópur felast m.a. í því að landsliðsþjálfari U21 velur hópinn og hefur reiðfærni, hestakost og íþróttamannslega framkomu að leiðarljósi. Þau ungmenni sem eru valin í liðið þurfa að hafa góðan keppnisárangur, stefna á HM og hafa hest sem er í boði til að fara á HM. Í stað þess að hópurinn hittist reglulega yfir árið þá er hverjum knapa skylt til að hafa reiðkennara/þjálfara, í samráði við landsliðsþjálfara, og þurfa að hitta hann að lágmarki einu sinni í viku. Landsliðsþjálfari hittir einnig knapana og þjálfara þeirra með reglulegu millibili, fylgist náið með þjálfunarferlinu og gerir reglulega stöðumat.

Þegar kemur að vali á liðinu sem keppir á HM þá eru þeir sem skipa U21 landsliðshópinn í forvali líkt og í landsliðshópi LH í flokki fullorðinna. Landsliðsþjálfari getur einnig tekið inn í liðið nýja knapa sem sýnt hafa framúrskarandi árangur í keppni, með skömmum fyrirvara, ef hann telur að það muni styrkja landsliðið.

Arnar Bjarki Sigurðarson sem var liðstjóri afrekshóps LH verður landsliðsþjálfari U21 landsliðshóps LH. Sigurbjörn Bárðarson landsliðsþjálfari LH hefur yfirumsjón með báðum hópum en mikið samstarf verður á milli landsliðsþjálfaranna.

U21 landsliðshóp LH skipa 16 afreksknapar 16-21 árs í fremstu röð í hestaíþróttum hérlendis.

Þeir 16 afreksknapar sem valdir hafa verið í landsliðshópinn eru:

Arnar Máni Sigurjónsson 16 ára, Fákur

Atli Freyr Maríönnuson 20 ára, Léttir

Ásdís Ósk Elvarsdóttir 21 árs, Skagfirðingur

Benjamín Sandur Ingólfsson 19 ára, Fákur

Bríet Guðmundsdóttir 19 ára, Sprettur

Egill Már Þórsson 16 ára, Léttir

Glódís Rún Sigurðardóttir 17 ára, Sleipnir

Guðmar Freyr Magnússon 18 ára, Skagfirðingur

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir 17 ára, Sleipnir

Hákon Dan Ólafsson 17 ára, Fákur

Katla Sif Snorradóttir 16 ára, Sörli

Kristófer Darri Sigurðsson 16 ára, Sprettur

Thelma Dögg Tómasdóttir 16 ára, Smári

Viktoría Eik Elvarsdóttir 19 ára, Skagfirðingur

Ylfa Guðrún Svafarsdóttir 19 ára, Fákur

Þórdís Inga Pálsdóttir 20 ára, Skagfirðingur

 Ljósmyndari: Gunnar Freyr Gunnarsson