Trec-mót í Sörla

14. febrúar 2013
Fréttir
Trec-mót verður haldið laugardaginn 16. febrúar nk. í Sörlahöllinni. Mótið hefst kl. 14.00. Þetta er opið mót fyrir alla, unga sem aldna. Enginn skráningargjöld - aðgangur ókeypis.

Trec-mót verður haldið laugardaginn 16. febrúar nk. í Sörlahöllinni.

Mótið hefst kl. 14.00

Þetta er opið mót fyrir alla, unga sem aldna.
Enginn skráningargjöld - aðgangur ókeypis.
Vinsamlega skráið ykkur til leiks á netfanginu stheo74@hotmail.com - eða í síma 692-3355, Sigga eða 892-1598 Lovísa.


Trec-mót eru fjölbreyttar og skemmtilegar þrautir líkt og í smala- keppni.


Þetta er kynningarmót og fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.
Við bjóðum hestamönnum frá öðrum hestamannafélögum að koma og taka þátt og kynna sér Trec-þrautirnar.

Bestu kveðjur
Fræðslunefnd Sörla.