Tölt í Meistaradeild í kvöld

23. febrúar 2012
Fréttir
Þá er orðið ljóst hvaða hestum knapar tefla fram annað kvöld klukkan 19:30 þegar keppt verður í tölti í Meistaradeild í hestaíþróttum. Að venju fer keppnin fram í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli. Þá er orðið ljóst hvaða hestum knapar tefla fram annað kvöld klukkan 19:30 þegar keppt verður í tölti í Meistaradeild í hestaíþróttum. Að venju fer keppnin fram í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli.

Það má gera ráð fyrir harðri baráttu í töltinu annað kvöld þar sem hver gæðingurinn á fætur öðrum er skráður til leiks. Hér að neðan eru ráslistar
kvöldsins:

Nr    Knapar    Lið    Hestur
1    Ólafur Ásgeirsson    Spónn.is    Sædynur frá Múla
2    Þórdís Erla Gunnarsdóttir    Auðsholtshjáleiga    Glefsa frá Auðsholtshjáleigu
3    Elvar Þormarsson    Spónn.is    Gráða frá Hólavatni
4    Sigurður Vignir Matthíasson    Ganghestar / Málning    Lómur frá Langholti
5    Guðmundur Björgvinsson    Top Reiter / Ármót    Gaumur frá Dalsholti
6    Artemisia Bertus    Hrímnir    Óskar frá Blesastöðum 1A
7    Eyjólfur Þorsteinsson    Lýsi    Háfeti frá Úlfsstöðum
8    John Kristinn Sigurjónsson    Hrímnir    Tónn frá Melkoti
9    Sigurbjörn Bárðarson    Lýsi    Jarl frá Mið-Fossum
10    Sara Ástþórsdóttir    Ganghestar / Málning    Díva frá Álfhólum
11    Lena Zielinski    Auðsholtshjáleiga    Njála frá Velli II
12    Þorvaldur Árni Þorvaldsson    Top Reiter / Ármót    Hrókur frá Flugumýri II
13    Viðar Ingólfsson    Hrímnir    Vornótt frá Hólabrekku
14    Sylvía Sigurbjörnsdóttir    Ganghestar / Málning    Þórir frá Hólum
15    Hinrik Bragason    Árbakki / Norður-Götur    Smyrill frá Hrísum
16    Eyvindur Mandal Hreggviðsson    Auðsholtshjáleiga    Hersveinn frá Lækjarbotnum
17    Teitur Árnason    Árbakki / Norður-Götur    Njáll frá Friðheimum
18    Hulda Gústafsdóttir    Árbakki / Norður-Götur    Sveigur frá Varmadal
19    Sigurður Sigurðarson    Lýsi    Dreyri frá Hjaltastöðum
20    Ævar Örn Guðjónsson    Spónn.is    Liba frá Vatnsleysu
21    Jakob Svavar Sigurðsson    Top Reiter / Ármót    Árborg frá Miðey

Forsala aðgöngumiða er í fullum gangi í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi, Selfossi. Aðgangseyrir er 1.500 krónur og hvetjum við áhorfendur til að tryggja sér miða í tíma því eftirsókn er mikil eftir miðum.

Minnum einnig á þáttinn um Meistaradeildina á RÚV klukkan 20:45 í kvöld.