Tilkynning vegna reiðleiða á Kili

13. júlí 2021
Fréttir

Sveitarfélagið Bláskógabyggð og Landssamband hestamannafélaga vilja árétta þær reglur sem gilda um umferð ríðandi manna um Biskupstungnaafrétt/Kjöl.

LH í samráði og góðu samstarfi við Bláskógabyggð og ýmis félagasamtök innan sveitarinnar s.s hestamannafélagið Loga og Landgræðslufélag Biskupstungna hafa kortlagt og merkt allar reiðleiðir á Biskupstungnaafrétti/Kili. Ekki er heimilt að fara með rekstra um sumar reiðleiðirnar heldur skulu þeir sem um þær fara hafa hesta sína í taumi.

Svæðin sem um ræðir eru ýmist landgræðslusvæði þar sem bændur í Biskupstungum hafa unnið að landbótum í áratugi eða gróin svæði sem fljótt láta á sjá fari þar um hópar sem telja tugi hrossa og þeim jafnvel beitt, sem því miður eru dæmi um.

Það er bagalegt fyrir hestamennskuna í landinu ef fáir aðilar geta ekki hlýtt þeim reglum sem settar hafa verið í samráði og sátt þeirra sem fara með umsjón svæðisins og heildarsamtaka hestamanna.

Sýnum ábyrgð í ferðum okkar um hálendið og fylgjum þeim reglum sem þar gilda.

 

Landsamband Hestamannafélaga og Bláskógabyggð