Þverárrétt og Melgerðismelarétt

23. september 2009
Fréttir
Réttað verður á Þverárrétt í Öngulsstaðadeild laugardaginn 3. október kl. 10:00 og einnig verður réttað á Melgerðismelarétt laugardaginn 3. október, rekið inn kl 13:00. Seldar verða allskyns ljúffengar veitingar. Réttað verður á Þverárrétt í Öngulsstaðadeild laugardaginn 3. október kl. 10:00 og einnig verður réttað á Melgerðismelarétt laugardaginn 3. október, rekið inn kl 13:00. Seldar verða allskyns ljúffengar veitingar. Sölusýning á Melgerðismelarétt.
Sölusýning verður haldin í framhaldi af Melgerðismelarétt 3. október n.k.
Ótamin tryppi verða sýnd í Melaskjóli  og tamin hross á hringvellinum við stóðhesta­húsið.
Skráning fer fram hjá Ævari í tölvupóstfang fellshlid@nett.is  eða síma 865 1370. Skrá skal nafn og fæðingarnúmer á hrossinu og verðhugmynd. Skráningargjald er kr 1000.- Leggist inn á reikningsnúmer 0302-26-7009 kt.700997-2439. 
Setjið nafn á hesti sem skýringu.
Skráningu líkur miðvikudaginn 30. september.
Stjórn hrossaræktarfélagsins Náttfara
 
Stóðréttardansleikur
Stóðréttardansleikur verður haldinn í Funaborg 3. október. Húsið opnar kl 22:00. Miðaverð kr 1500.-
Hljómsveitin Í sjöundahimni leikur fyrir dansi fram á morgun.
Hestamannafélagið Funi