Þjálfarastyrkir ÍSÍ

25. janúar 2010
Fréttir
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir tímabilið júlí 2009 til júní 2010.  Veittir verða styrkir á bilinu 50.000.- 100.000.- krónur, allt eftir eðli umsóknar og fjölda þeirra.  Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir hér með eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir tímabilið júlí 2009 til júní 2010.  Veittir verða styrkir á bilinu 50.000.- 100.000.- krónur, allt eftir eðli umsóknar og fjölda þeirra.  Styrkhæf eru námskeið eða sambærilegt nám sem sótt er/var erlendis og veitir íþróttaþjálfurum aukna þekkingu sem nýtast mun íþróttahreyfingunni hér á landi.
Umsóknareyðublöð eru hér á heimasíðunni og má finna þau undir „Um ÍSÍ“ og „Styrkir“.  Umsækjendur þurfa jafnframt að skila inn áætlaðri kostnaðaráætlun eða yfirlit yfir kostnað ferðar sem farin var.
Umsóknir skulu berast skrifstofu ÍSÍ, merktar „Þjálfarastyrkir“.
Allar nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri fræðslusviðs á vidar@isi.is eða í síma 514-4000.