Þjálfaramenntun til 1. stigs ÍSÍ

13. september 2012
Fréttir
Haustfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 8. október nk. og tekur það átta vikur. Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 25.000.-

Haustfjarnám 1. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 8. október nk. og tekur það átta vikur.  Um er að ræða samtals 60 kennslustunda nám og er þátttökugjald kr. 25.000.- 

Námið er almennur hluti þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Það jafngildir áfanganum ÍÞF 1024 sem kenndur er í framhaldsskólum landsins og fæst metið sem slíkt.

Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir fimmtudaginn 4. október. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer.  Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.

Metþátttaka var í sumarfjarnámi ÍSÍ 2012 þar sem um 40 þjálfarar kláruðu 1. stig, alm. hluta.

Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is  

 

Með bestu kveðju,
Viðar Sigurjónsson
Sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ.