Taktu þátt í ljósmyndasamkeppni Feif og IPZV 2022

09. mars 2022
Fréttir

FEIF og IPZV halda á hverju ári 4 ljósmyndasamkeppnir tileinkaðar hverri árstíð. Fyrsta þemað í ár er "Eldur og Ís".

Myndirnar verður að senda í landscape og í góðum gæðum. Leyfilegt er að senda inn allt að 3 myndir.

Mikilvægt er að hafa í huga: 

  • Myndirnar verða að innihalda íslenska hestinn
  • Myndin verður að vera tekin af þér eða fjölskyldu eða vinum. Myndir frá atvinnuljósmyndurum eru ekki samþykktar.
  • Skylda er að vera með hjálm ef knapi er á baki á myndinni.
  • Vinsamlegast setjið inn heimilisfang svo hægt sé að senda sigurvegara keppninnar vinninginn.

Alþjóðleg dómnefnd fer síðan yfir myndirnar og verða 10 bestu myndirnar valdar til kosningar á netinu.

Veglegir vinningar í boði.

Sendið myndirnar á photo@feif.org

Síðasti skiladagur er 31. mars 2022.