Sýnikennsla með þreföldum heimsmeistara

09. janúar 2013
Fréttir
Stian Pedersen
Á laugardaginn klukkan 20:00 verður Stian Pedersen með sýnikennslu á Sörlastöðum í Hafnarfirði.

Á laugardaginn klukkan 20:00 verður Stian Pedersen með sýnikennslu á Sörlastöðum í Hafnarfirði.

Stian er flestum góðkunnur en hann hefur m.a. hampað heimsmeistaratitli í tölti, fjórgangi og fimmgangi.

Stian mun fara yfir sínar aðferðir í þjálfun sem hann notar með frábærum árangri.

Einstök sýnikennsla sem þú mátt ekki láta fram hjá þér fara. En þess má geta að Stian talar íslensku.

Sjáumst hress á Sörlastöðum klukkan 20:00.

Miðaverð er 2.000 krónur.