Svellkaldar konur 2012

20. janúar 2012
Fréttir
Undirbúningur er hafinn á fullu fyrir hið vinsæla ístöltsmót kvenna "Svellkaldar konur" sem haldið er til styrktar landsliðinu í hestaíþróttum. Mótið fer að þessu sinni fram laugardaginn 17. mars nk. í Skautahöllinni í Laugardal. Undirbúningur er hafinn á fullu fyrir hið vinsæla ístöltsmót kvenna "Svellkaldar konur" sem haldið er til styrktar landsliðinu í hestaíþróttum. Mótið fer að þessu sinni fram laugardaginn 17. mars nk. í Skautahöllinni í Laugardal.

Keppnin verður með sama sniði og áður, þ.e. þrír styrkleikaflokkar: Minna vanar, Meira vanar og Opinn flokkur. Aðeins 100 pláss eru í boði og getur hver keppandi einungis skráð einn hest til leiks. Nánari upplýsingar um skráningu verða kynntar þegar nær dregur.

Að venju verður mótið hið veglegasta hvað umgjörð og verðlaun varðar, en m.a. er keppt um verðlaunagripinn glæsilega Ísfjöðrina frá Mustad, auk fjölda flottra aukaverðlauna.

Boðið verður upp á A og B úrslit í öllum flokkum, auk þess sem glæsilegasta par mótsins er valið af dómurum.

Konur eru hvattar til að taka daginn strax frá og fylgjast með fréttum á vefmiðlum hestamanna og Facebook.