Sveinn Guðmundsson gerður heiðursfélagi

08. nóvember 2010
Fréttir
Sveinn Guðmundsson frá Sauðárkróki hlaut heiðursverðlaun Landssambands hestamannafélaga árið 2010.
Sveinn Guðmundsson frá Sauðárkróki var heiðraður á Uppskeruhátíð hestamanna síðastliðinn laugardag fyrir störf sín í þágu íslenska hestsins. Sveinn Guðmundsson frá Sauðárkróki var heiðraður á Uppskeruhátíð hestamanna síðastliðinn laugardag fyrir störf sín í þágu íslenska hestsins. Ræktun Sveins frá Sauðárkróki hefur markað djúp spor í ræktun íslenska hestsins og hann á stóran þátt í þeim framförum sem orðið hafa í íslenskri hrossarækt.

Sveinn hefur í rúma hálfa öld verið í fremstu röð hrossaræktenda en eins og flestir vita sýndi Sveinn hina frægu Ragnars-Brúnku árið 1954 sem síðar varð stofnhryssa í ræktun Sveins. Afkvæmi hennar og afkomendur þeirra hafa skilað mörgum gæðingum sem ræktaðir hafa verið frá Sauðárkróks-Hestum sem er ræktunarnafn fjölskyldunnar í dag.
 
Landssamband hestamannafélaga óskar Sveini Guðmundssyni innilega til hamingju með heiðursverðlaunin.


Sveinn Guðmundsson ásamt Haraldi Þórarinssyni formanni LH.