Sumarkveðja frá LH

26. apríl 2013
Fréttir
Sumargleði! Mynd: HKG
Landssamband hestamannafélaga þakkar hestamönnum fyrir veturinn og óskar þeim gleðilegs sumars. Í hönd fer skemmtilegur tími með sleppitúrum, hestaferðum, mótum og kynbótasýningum, hérlendis sem erlendis.

Landssamband hestamannafélaga þakkar hestamönnum fyrir veturinn og óskar þeim gleðilegs sumars. Í hönd fer skemmtilegur tími með sleppitúrum, hestaferðum, mótum og kynbótasýningum, hérlendis sem erlendis. Við hestamenn eigum eftir að njóta okkar íslenska sumars og okkar frábæra lands út í ystu æsar eins og við kunnum svo vel, enda birtan ríkjandi dag sem nótt. 

LH óskar hestamönnum góðs gengis í hestamennskunni í sumar. 

Sprettur

Ég berst á fáki fráum
fram um veg.
Mót fjallahlíðum háum
hleypi ég.
Og golan kyssir kinn.
Og á harða, harða spretti
hendist áfram klárinn minn.

Það er sem fjöllin fljúgi
móti mér,
sem kólfur loftið kljúfi
klárinn fer.
Og lund mín er svo létt,
eins og gæti eg gjörvallt lífið
geisað fram í einum sprett.

Hannes Hafstein