Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun

12. júní 2009
Fréttir
Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst 29. júní næstkomandi.  Skráningu þarf að vera lokið fyrir föstudaginn 26. júní. Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun hefst 29. júní næstkomandi.  Skráningu þarf að vera lokið fyrir föstudaginn 26. júní.

Um er að ræða fyrsta stig þjálfaramenntunar ÍSÍ almennan hluta sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.  Námið jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólum og fá því nemendur sem klára námskeiðið þann áfanga metinn og þar með tvær einingar ef til mats kemur inn í framhaldsskóla.

Námið tekur átta vikur og er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur.  Nemendur skila verkefnum vikulega auk lokaverkefnis og taka auk þess nokkur krossapróf.
Meðal efnis á námskeiðinu eru stefnur ÍSÍ í þjálfaramenntun og barna- og unglingaíþróttum, kennslufræði þar sem meðal annars er fjallað um þjálfunaráætlanir og tæknikennslu auk kafla um vöðvafræði, uppbyggingu líkamans, íþróttameiðsl, íþróttasálfræði, næringu o.fl. o.fl.

Skráning er á namskeid@isi.is og er námskeiðið öllum opið sem lokið hafa grunnskólaprófi.  Við skráningu þarf að gefa upp fullt nafn, heimilisfang, kennitölu, netfang og símanúmer.

Allar nánari upplýsingar gefur sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is