Styttist í úrtökumót fyrir HM2011

30. maí 2011
Fréttir
Úrtökumót fyrir Heimsmeistaramót íslenska hestsins verður að þessu sinni haldið í samstarfi við hestamannafélagið Sörla og „Gullmótið“. Úrtökumót fyrir Heimsmeistaramót íslenska hestsins verður að þessu sinni haldið í samstarfi við hestamannafélagið Sörla og „Gullmótið“.

Úrtökumótið fer fram dagana 15.-19.júní á Sörlastöðum í Hafnarfirði. Skráning, skráningargjöld og nánar fyrirkomulag verður auglýst síðar.

LYKILL AÐ VALI ÍSLENSKA LANDSLIÐSINS Á HM 2011

Fullorðnir og ungmenni:
1. Knapi/hestur: Stigahæsti 5-gangari í úrtöku, að meðaltali úr báðum umferðum.
2. Knapi/hestur: Stigahæsti 4-gangari í úrtöku, að meðaltali úr báðum umferðum.
3. Knapi/hestur: Stigahæsti töltari (T1) í úrtöku, að meðaltali úr báðum umferðum.
4. Knapi/hestur:
a) Knapi/hestur (parið) ef hann nær 7.77 eða hærri einkunn í T2 í úrtöku, að meðaltali úr
báðum umferðum.
b) Knapi/hestur (parið) sem nær 8.25 eða hærri einkunn í gæðingaskeiði PP1 í úrtöku, að
meðaltali úr báðum umferðum.
c) Knapi/hestur (parið) sem nær 7.50 sek eða 7.70 eða betri tíma úr tveimur umferðum í
100m skeiði. 4 sprettir, tveir bestu sprettir gilda úr báðum umferðum. Ef fleiri en einn
hestur nær lágmarkinu þá skal sá veljast sem betri árangri nær miðað við þau lágmörk sem
sett eru.
Lagt er að jöfnu:
Einkunn: 7,77 í slaktaumatölti T2,
Einkunn: 8,25 í gæðingaskeiði PP1,
Tími: 7,50 í 100m skeiði P2.
5. Knapi/hestur: sem nær 22,30 sek eða betri tíma einu sinni á móti og 22,80 eða betri tíma í
öðrum spretti sem þarf ekki að vera á sama móti. Árangurinn þarf að nást við löglegar aðstæður úr
rásbásum með rafrænni tímatöku. Skal miða við að árangur náist í síðasta lagi á Íslandsmóti
fullorðinna 2011.
Ef hestur 4 og 5 nást ekki eftir uppgefnum lágmörkum verða þeir báðir valdir af liðsstjóra.
6. Knapi/hestur: Liðsstjóri velur.
7. Knapi/hestur: Liðsstjóri velur.
8. Knapi/hestur: Það ungmenni sem nær hæstu einkunn í T1, V1 eða F1 í úrtöku.
9. Knapi/hestur: Það ungmenni sem nær hæstu einkunn í T1, V1, F1, T2, PP1, P2(100m) þó ekki í
sömu grein og 8.knapi/hestur (parið) sem kemst í liðið í gegnum úrtöku. Miða skal við stigatöflu
í FIPO sem segir til um styrk greina.
10. Knapi/hestur: Ungmenni, liðsstjóri velur par sem tekið hefur þátt í móti á Íslandi í hvaða grein
sem er á þeim mótum sem fara fram þar til að lokaskráning fer fram. Liðstjóri skal einnig hafa í
huga þá knapa sem hafa verið valdir í úrvalshóp LH, U21.

Keppendur 1-7 eru fullorðnir.
Keppendur 8-10 eru ungmenni.

Reiknað er meðaltal greina úr báðum hlutum úrtökunnar hjá knapa 1-2-3-8 og 9 og ræður það um
sæti knapa/hests (pars).

Um knapa/hest (par) 4-5 gilda ofantalin lágmörk en aðrir eru liðstjóravaldir.

Keppnisgreinar í úrtöku verða T1, T2, V1, F1, PP1, P2.
Keppni í öðrum skeiðgreinum fer fram á mótum fram að skráningu (síðasta lagi Íslandsmót
fullorðna 2011) við löglegar aðstæður.
Sprettir í 100m og 250m skeiði skal miða við löglegar aðstæður og rafræna tímatöku.

Liðstjórar fylgjast með ástandi og framþróun liðsins frá úrtöku og fram að keppni á HM. Þeir
keppendur sem hafa titil að verja falla einnig undir þennan lið.

Liðstjórar hafa full völd á hverjum tíma til að gera breytingar á liðinu, hvort sem um er að ræða
knapa/hest (par) sem valið hefur verið í úrtöku, knapa/hest (par) heimsmeistara frá s.l. móti eða
liðstjóravalda knapa/hest (par). Ríkjandi heimsmeistarar skulu tilkynna keppnishesta sína fyrir maí
lok 2011 til liðsstjóra.

Landsliðsnefnd LH