Styttist í fría áskrift að WorldFeng

28. maí 2009
Fréttir
Orri frá Þúfu. Knapi Rúna Einarsdóttir.
Bændasamtök Íslands hafa fengið félagaskrá LH á tölvutæku formi afhenta úr FELIX félagatalinu. Bændasamtökin vinna nú að því að lesa upplýsingar um alla félaga aðildarfélaga LH inn í WorldFeng. Bændasamtök Íslands hafa fengið félagaskrá LH á tölvutæku formi afhenta úr FELIX félagatalinu. Bændasamtökin vinna nú að því að lesa upplýsingar um alla félaga aðildarfélaga LH inn í WorldFeng.

Á vef WorldFengs segir að með nýjum samningi milli Bændasamtaka Íslands og FEIF fá allir félagar í aðildarlöndum samtakanna frían aðgang að WF í gegnum aðildarfélög sín. Það er ljóst að um verulega kjarabót á krepputímum er að ræða fyrir félaga LH sem hafa hingað til keypt sér ársáskrift að WF en í dag kostar slík áskrift 7.800 kr!

Hvert aðildarfélag LH á að tilnefna umsjónarmann sem ber ábyrgð á lokayfirferð til að tryggja að allir sem greitt hafa félagsgjöld fái frían aðgang að WF frá og með næstu mánaðarmótum. WF mun senda sjálfkrafa tölvupóst til allra félaga þegar umsjónarmaður félagsins hefur samþykkt félagalistann í WF.