Styttist í fjörið!

03. nóvember 2010
Fréttir
Það styttist heldur betur í Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin verður á Broadway n.k. laugardag, 6.nóv. Það styttist heldur betur í Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin verður á Broadway n.k. laugardag, 6.nóv. Enn eru nokkrir miðar lausir í borðhaldið og allar upplýsingar er að fá hjá miðasölu Broadway í s:533-1100 eða á tölvupósti midasala@broadway.is.
Húsið opnar kl 19:00 fyrir hátíðargesti.
Matseðill kvöldsins er glæsilegur að vanda en í forrétt verður borið fram sjávarréttarspjót á spínatbeði, í aðalrétt verður lambavöðvi í rauðvínssósu og í eftirrétt verður súkkulaðibomba með mangó ís.

Davíð Ólafsson og félagar verða veislustjórar og svo mun hinn eini sanni Helgi Björns halda uppi fjörinu fram á nótt.