Styrktarmót fyrir Róbert Veigar

23. apríl 2018
Fréttir
Róbert og fjölskylda.

Eins og margir vita á einn af góðum félagsmönnum Sörla, Róbert Veigar Ketel, við erfið veikindi að stríða, og til að styðja við bakið á honum og fjölskyldu hans verður haldið styrktarmót þann 2. maí á Sörlastöðum í Hafnarfirði. Áætlað er að mótið hefjist kl. 18:00.

Um er að ræða opið töltmót þar sem öll innkoma rennur óskipt í styrktarsjóð Róberts, þar sem allir sem að mótinu koma gefa vinnu sína.

Boðið verður uppá eftirfarandi flokka:

  • T3 Opinn flokkur
  • T3 Áhugamenn
  • T7 fullorðinna
  • T3 21 árs og yngri
  • T7 21 árs og yngri

Skráningargjöld eru frjáls framlög að lágmarki 3.000 kr og fer skráning fram í reiðhöllinni Sörlastöðum á milli kl 19 og 21 mánudagskvöldið 30. apríl.

Sýnum samstöðu í verki og tökum þátt!

Fyrir nánari upplýsingar má hringja í síma 823 0454 (Magga Freyja) eða 848 6811 (Hafdís Arna)