Stórsýning Fáks á laugardagskvöld

28. apríl 2011
Fréttir
Landsmótssigurvegarinn Röðull og fleiri gæðingar frá Kálfholti koma fram á Fákssýningu á laugardagskvöldið. Ljósm.: HGG
Stórsýning Fáks fer fram í reiðhöllinni í Víðidal á laugardaginn kemur 30. apríl. Sýningin hefst kl. 21 og er miðaverð kr. 2.000, frítt fyrir 12 ára og yngri. Stórsýning Fáks fer fram í reiðhöllinni í Víðidal á laugardaginn kemur 30. apríl. Sýningin hefst kl. 21 og er miðaverð kr. 2.000, frítt fyrir 12 ára og yngri.

Boðið verður upp á fjölbreyttan hestakost, ræktunarbú, stóðhesta, klárhryssur og alhliðahesta, skeið og sprell. Meðal þeirra sem koma fram eru stjórstjörnurnar frá Kálfholti, Röðull landsmótssigurvegari og Kjarnorka ofurhryssa, Viðar Ingólfsson mætir með hina glæsilegu Stemmu frá Holtsmúla, U21 hópurinn leikur listir sínar, borgfirsku gæðingarnir Eskill og Erpir fara á kostum og margt, margt fleira. Miðasala fer fram við innganginn og eru allir velkomnir!