Stórmót Geysis 2012

30. júlí 2012
Fréttir
Stórmót Geysis er gæðingakeppni og verður haldið um verslunarmannahelgina 3-5 ágúst 2012.

Stórmót Geysis er gæðingakeppni og verður haldið um verslunarmannahelgina 3-5 ágúst 2012. Keppt verður í A-flokki gæðinga, B-flokki gæðinga, A-flokki gæðinga áhugamanna, B-flokki gæðinga áhugamanna, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki. Einnig verður keppt í opnum flokki í tölti T1. Í öllum flokkum verður einn inná vellinum í einu og hver með sitt prógram. 
 
Skráning fer fram mánudagskvöldið 30.júlí kl 19:00-22:00 í síma 8637130 / 8648797 / 6592237.
Skráningargjald 4000kr og greiðist um leið og skráð er.

Ræktunarbú á laugardagskvöldi, ef einhver hefur áhuga á því að koma með ræktunarbú á stórmótið endilega hafið samband við Vignir í síma 8943106.
 
Mótanefnd