Stóðréttir í Svarfaðardal

02. október 2012
Fréttir
Réttað verður í Tungurétt í Svarfaðardal laugardaginn 6. október. Réttarstörf hefjast kl 13:00. Mikið af efnilegum, vel ættuðum trippum til sölu.

Réttað verður í Tungurétt í Svarfaðardal laugardaginn 6. október. Réttarstörf hefjast kl 13:00. Mikið af efnilegum, vel ættuðum trippum til sölu.

Margrómað kaffihlaðborð að hætti heimamanna.
 
Á Rimum/Húsabakka hefst dansleikur kl 23:00. Stulli og Dúi halda uppi fjörinu að vanda. Aðgangseyrir kr. 2000.

Hestamannafélagið Hringur og
Hrossaræktardeils Svarfaðardals og nágrennis