Stóðhestavelta landsliðsins - næstu hestar í pottinum

23. apríl 2020
Fréttir

Við kynnum til leiks næstu sex hesta sem eru í pottinum í stóðhestaveltu til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum. 

Miðasala hefst á tix.is 1. maí og dregið verður úr seldum miðum í beinni útsendingu á facebooksíðu LH. Miðaverð er kr. 40.000, girðingagjald er ekki innifalið.

Spuni frá Vesturkoti 8,92. Spuni var efstur í flokki 5 vetra stóðhesta á landsmóti 2011. Hann vann A-flokk á landsmóti 2014 og með 9,30 í einkunn. Spuni er farsæll kynbótahestur og hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi á landsmóti 2016 og heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og Sleipnisbikarinn á landsmóti 2018. Myndband af Spuna á Worldfeng.

Ljósvíkingur frá Steinnesi 8,33. Ljósvíkingur er ungur og upprennandi stóðhestur sem er að hefja sinn keppnisferill. Myndband af Ljósvíkingi á WorldFeng.

Kórall frá Lækjarbotnum 8,50. Kórall hefur átt farsælan keppnisferil í A-flokki og fimmgangi. Hann hefur hlotið 9,0 í kynbótadómi fyrir brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Myndband af Kóral á WorldFeng.

Knár frá Ytra-Vallholti 8,47. Knár er með 9,0 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag, fet og samræmi í kynbótadómi og hefur skilað hátt dæmdum afkvæmum. Myndband af Kná á WorldFeng.

Þytur frá Skáney 8,49. Þytur er með 9 fyrir tölt, stökk, bak og lend, samræmi, hófa og prúðleika í kynbótadómi. Hann er farsæll keppnishestur í fimmgangi og A-flokki. Myndband af Þyt á WorldFeng.

 Blær frá Torfunesi 8,55. Blær hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi á landsmóti 2011. Hann átti farsælan keppnisferil í fimmgangi og A-flokki. Myndband af Blæ á WorldFeng.