Stóðhestavelta landsliðsins - fleiri stórsnillingar

29. apríl 2020
Fréttir

Glúmur, Skýr, Barði, Hnokki, Vegur, Dagfari, Dropi og Kjerúlf eru með í stóðhestaveltu til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum. 

Miðasala hefst á tix.is 1. maí og dregið verður úr seldum miðum í beinni útsendingu á facebooksíðu LH. Miðaverð er kr. 40.000, girðingagjald er ekki innifalið.

Kjerúlf frá Kollaleiru 8,44. Kjerúlf hlaut fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á landsmóti 2016. Hann hefur hlotið í kynbótadómi m.a. 9,5 fyrir brokk og 9,0 fyrir tölt, vilja og geðslag, fegurð í reið og hægt tölt. Myndband af Kjerúlf af WorldFeng.

Glúmur frá Dallandi 8,81. Glúmur var efstur í flokki 7 vetra stóðhesta á landsmóti 2018. Hann hefur hlotið í kynbótadómi m.a. 9,0 fyrir tölt, skeið, stökk, vilja og geðslag, fegurð í reið, hægt tölt, bak og lend, samræmi, fótagerð og hófa. Myndband af Glúmi af Worldfeng.

Dagfari frá Álfhólum 8,62. Dagfari er ungur og upprennandi kynbótahestur. Hann hefur m.a.  hlotið í kynbótadómi 9,5 fyrir brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið og  9,0 fyrir tölt og stökk. Myndband af Dagfara af Worldfeng.

Hnokki frá Eylandi 8,39. Hnokki er hátt dæmdur klárhestur og hefur í kynbótadómi hlotið 8,50 fyrir hæfileika, þar af 9,5 fyrir tölt, stökk og vilja og geðslag, 9,0 fyrir brokk, fegurð í reið, hægt tölt og hægt stökk.  Í fjórgangi hefur hann hæst hlotið 7,37. Myndband af Hnokka hér.

Vegur frá Kagaðarhóli 8,53. Vegur hefur átt farsælan keppnisferil í fimmgangi. Hann hefur hlotið í kynbótadómi m.a. 9,0 fyrir tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið. Myndband af Vegi hér.

Skýr frá Skálakoti 8,70. Skýr er farsæll keppnishestur í fimmgangi og A-flokki. Hann hlaut fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á landsmóti 2018 og hæst dæmda afkvæmi hans er Katla frá Hemlu. Myndband af Skýr af WorldFeng.

Dropi frá Kirkjubæ 8,45. Dropi er upprennandi keppnis- og kynbótahestur. Hann hefur hlotið í kynbótadómi m.a. 9,0 fyrir tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið. Myndband af Dropa af WorldFeng.

Barði frá Laugarbökkum 8,51. Barði hefur átt farsælan keppnisferil. Hann hefur hlotið í kynbótadómi m.a. 9,0 fyrir tölt, stökk, fegurð í reið, hægt tölt og bak og lend. Myndband af Barða af WorldFeng.