Stóðhestavelta landsliðsins - næstu sex hestar

24. apríl 2020
Fréttir

Ljúfur, Eldjárn, Hlekkur, Lord, Nói og Þór eru í pottinum í stóðhestaveltu til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum. 

Miðasala hefst á tix.is 1. maí og dregið verður úr seldum miðum í beinni útsendingu á facebooksíðu LH. Miðaverð er kr. 40.000, girðingagjald er ekki innifalið.

Ljúfur frá Torfunesi 8,49.  Ljúfur er landsmótssigurvegari í tölti 2018. Hann hlaut 10,0 fyrir tölt í kynbótadómi og 9,5 fyrir hægt tölt, vilja og geðslag og fegurð í reið og 9,0 fyrir hægt stökk. Myndband af Ljúfi hér.

Eldjárn frá Skipaskaga 8,65. Eldjárn var efstur í flokki 4ra vetra stóðhesta á landsmóti 2018. Hann hefur hlotið í kynbótadómi 9,5 fyrir fótagerð og prúðleika og 9,0 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag, fegurð í reið og samræmi. Myndband af Eldjárni hér.

Hlekkur frá Saurbæ 8,48. Hlekkur hefur átt farsælan keppnisferil í A-flokki, fimmgangi, gæðingaskeiði og tölti. Hann hefur hlotið í kynbótadómi 9,0 fyrir skeið, vilja og geðslag og fegurð í reið.  Myndband af Hlekki hér.

Þór frá Torfunesi 8,80. Þór var annar í flokki fimm vetra stóðhesta á landsmóti 2018. Hann hefur hlotið í kynbótadómi 9,0 fyrir tölt, brokk, skeið, vilja og geðslag, fegurð í reið, háls/herðar/bóga og bak og lend og 9,5 fyrir samræmi.  Myndband af Þór hér.

Lord frá Vatnsleysu 8,25. Lord er hátt dæmdur klárhestur og hefur hlotið í kynbótadómi 9,0 fyrir brokk, stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið og 9,5 fyrir samræmi. Myndband af Lord hér.

Nói frá Saurbæ 8,61. Nói hefur átt farsælan keppnisferil í A-flokki, fimmgangi, gæðingaskeiði, tölti og var m.a. í úrslitum í A-flokki á landsmóti 2018. Hann hefur hlotið í kynbótadómi 9,0 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag, samræmi og hófa. Myndband af Nóa hér.