"Stjörnu" happadrætti

11. febrúar 2010
Fréttir
Happadrætti Meistaradeildar VÍS verður með breyttu sniði í ár. Nú verður eingöngu dregið einu sinni og það á lokamótinu sem fer fram á sumardaginn fyrsta, 22. apríl. Happadrætti Meistaradeildar VÍS verður með breyttu sniði í ár. Nú verður eingöngu dregið einu sinni og það á lokamótinu sem fer fram á sumardaginn fyrsta, 22. apríl. Happadrættismiðinn kostar 1.000 krónur eins og í fyrra. Vinningslíkurnar í ár eru meiri en í fyrra þar sem nú verður dregið úr fleiri tollum og eru 15 folatollar staðfestir en aldrei að vita nema nýir bætist í hópinn þegar nær dregur.

Margir heimsþekktir stóðhestar eru á listanum en stóhestarnir eru eftirfarandi:

Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu, f.ár 2005, aðaleinkunn 8,28 Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum, f.ár 2007 Ás frá Ármóti, f.ár 2000, aðaleinkunn 8,45 Brimnir frá Ketilsstöðum, f.ár 2005, aðaleinkunn 8,33 Dofri frá Steinnesi, f.ár 2005, aðaleinkunn 8,22 Frosti frá Efri-Rauðalæk, f.ár 2004, aðaleinkunn 8,26 Kjarni frá Þjóðólfshaga, f.ár 2000, aðaleinkunn 8,30 Leiknir frá Vakurstöðum, f.ár 1999, aðaleinkunn 8,28 Ljóni frá Ketilsstöðum, f.ár 2004, aðaleinkunn 8,26 Óskar frá Blesastöðum, f.ár 2004, aðaleinkunn 8,22 Straumur frá Breiðholti, f.ár 2002, aðaleinkunn 8,41 Sædynur frá Múla, f.ár 2002, aðaleinkunn 8,34 Sær frá Bakkakoti, f.ár 1997, aðaleinkunn 8,62 Vilmundur frá Feti, f.ár 2001, aðaleinkunn 8,56 Þeyr frá Akranesi, f.ár 2001, aðaleinkunn 8,55

Byrjað verður að selja happadrættismiðana í kvöld og því er um að gera fyrir ræktendur að tryggja sér miða fyrr en seinna.