Sprettur heldur Íslandsmót í Fáki

03. júlí 2018
Fréttir
Hjörtur Bergstað og Sveinbjörn Sveinbjörnsson handsala samkomulagið.

Hestamannafélagið Fákur hefur boðið hestamannafélaginu Spretti afnot af landsmótsvæði sínu í Víðidal fyrir Íslandsmót allra flokka sem Spretti var úthlutað á Landsþingi hestamanna haustið 2016. Mótið verður haldið dagana 18. - 22. júlí n.k.

Sprettur hefur ákveðið að þiggja þetta góða boð og mun Sprettur því halda Íslandsmót 2018 á stórglæsilegu félagssvæði Fáks.
Ljóst er að mjög vel hefur til tekist með uppbyggingu á svæðinu, sem er allt hið glæsilegasta og því vel við hæfi að Íslandsmót okkar hestamanna fari þar fram.

Stefna forsvarsmenn Spretts og Fáks að enn öflugra samstarfi þessara tveggja stærstu hestamannafélaga landsins á komandi misserum. 

Hjörtur Bergstað formaður Fáks & Sveinbjörn Sveinbjörnsson formaður Spretts