Sprettur - myndskeið

05. júní 2012
Fréttir
Þau skötuhjú Helgi Björnsson og Vilborg Halldórsdóttir ferðast um landið í júní og taka hús á nokkrum af þeim fjöldamörgu einstaklingum sem eru að undirbúa sig fyrir Landsmót hestamanna, hápunkt hestamennskunnar á Íslandi.

Fjöldi viðmælenda prýða þáttinn, sem verður einkar áhugaverður fyrir hestaáhugafólk sem og hina sem langar að fræðast meira um Landsmót og allt það sem lítur að hestamennsku hér á landi. Meðal viðmælenda eru reiðkennarar og dómarar, frægir knapar, aðstandendur Landsmótsins og vonarstjörnur Landsmótsins, auk þess sem ræktunarbú verða heimsótt og hestalitir teknir til umfjöllunnar svo fátt eitt sé nefnt. Þá verður stiklað á stóru í sögu Landsmóts hestamanna.

Þættirnir verða á léttum og skemmtilegum nótum og eru fullkomin upphitun fyrir Landsmótið og hestamennskuna í sumar.

Sjá stiklu úr myndinni hér fyrir neðan: