Sörli hlaut æskulýðsbikarinn

14. október 2016
Dagbjört Hulda form. æskulýðsnefndar Sörla

Að venju var æskulýðsbikar LH afhentur á landsþingi sambandsins og kom sá heiður í hlut hestamannafélagsins Sörla. Það er æskulýðsnefnd LH sem velur það félag sem hlýtur bikarinn á hverju ári og metur starf æskulýðsnefnda félaganna með innsendum skýrslum þessara nefnda.

Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir formaður æskulýðsnefndar Sörla veitti bikarnum viðtöku með stolti. Hestamenn óska Sörlafólki innilega til hamingju með frábært starf í æskulýðsmálum.