Sleipnir hlýtur Æskulýðsbikar LH

19. október 2012
Fréttir
Æskulýðsnefnd LH afhendir Æskulýðsbikar LH á hverju ári til þess félags er þykir skara fram úr í æskulýðsstarfinu. Í ár var það hestamannafélagið Sleipnir sem hlaut þessa eftirsóttu viðurkenningu og eru þau vel að henni komin.

Landssamband hestamannafélaga óskar Sleipnisfélögum innilega til hamingju um leið og önnur félög eru hvött til dáða á sviði æskulýðsmála.

Það var Ágúst Hafsteinsson formaður æskulýðsnefndar Sleipnis ásamt Kjartani Ólafssyni formanni Sleipni sem veitti bikarnum viðtöku úr hendi Helgu B. Helgadóttur formanns æskulýðsnefndar LH.