Skrifstofustarf / Afreksmál

30. nóvember 2018
Fréttir

Landssamband hestamannafélag óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu, m.a. í umsjón með afreksmálum sambandsins. Leitað er að sjálfstæðum og drífandi einstakling með góða þekkingu á félagsstörfum og afreksstarfi félagasamtaka.

Starfssvið

  • Dagleg umsjón afreksmála sambandsins – Landsliðs – Afrekshóps - Æskulýðsstarfs.
  • Almenn skrifstofustörf og þjónusta við aðildarfélög sambandsins.
  • Umsjón verkefna, þátttaka í samstarfsverkefnum og eftirlit með starfsemi.
  • Umsjón með stefnumótun, markmiðasetningu og aðgerðaráætlun í afreksmálum.
  • Samskipti við landsliðsnefnd, landsliðsþjálfara og fagteymi sambandsins.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Íþróttafræðingur eða önnur sambærileg menntun sem nýtist til starfsins.
  • Reynsla og áhugi af félags-, íþrótta- og afreksstarfi æskileg.
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum, ásamt góðri þjónustulund, stundvísi og reglusemi.
  • Frumkvæði ögun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, í töluðu og rituðu máli nauðsynleg.
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta.

Umsókn

Um fullt starf er að ræða og starfsstöð er skrifstofa LH í Laugardal, Reykjavík.

Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferliskrá og kynning á umsækjanda.

Upplýsingar um starfið veitir Hjörný Snorradóttir, framkvæmdastjóri, í síma 848 1315, eða í tölvupóstfangi hjorny@lhhestar.is

Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2018